Hvað er Fokolare?
Fokolare er hreyfing sem hefur að markmiði að stuðla að einingu og bróðerni á öllum sviðum lífsins; í persónulegum samböndum, innan fjölskyldunnar, í skóla og á vinnustöðum, innan kirkjunnar og í samfélaginu í heild.
Stofnun Fokolare hreyfingarinnar má rekja til ársins 1943 þegar Chiara Lubich og vinkonur hennar í borginni Trent á Norður-Ítalíu uppgötvuðu Nýja testamentið sem lesefni til að lifa eftir. Þær tóku þá róttæku ákvörðun um að lifa eftir orðum Bíblíunnar í öllum kringumstæðum lífsins. Þær störfuðu eftir einkunnarorðunum:
“Faðir, verði þeir allir eitt” (Jh, 17, 21)
Fljótt tók fjöldi fólks konurnar til fyrirmyndar og ákváðu að lifa eftir orðum Nýja testamentsins. Síðan hefur Fokolare-hreyfingin vaxið jafnt og þétt og starfar nú í öllum heimsálfum.

